Ferskur þorskur – vantar 2,1 milljarða

Deila:

Áhrifa verkfallsins eru nú óðum að koma í ljós.  Engum blöðum er um það að fletta að milljarðar hafa tapast í útflutningsverðmætum.  Við skoðun talna fyrir nýliðinn janúar er ljóst að útflutningsverðmæti í okkar verðmætustu afurð – ferskum þorski – var aðeins 30% af því sem það var á sama tíma í fyrra.  Í janúar sl. skilaði ferskur þorskur 1,3 milljarði en 3,4 milljörðum á sama tíma í fyrra.  Magnið nú var aðeins 38% af því sem það var í fyrra samkvæmt samantekt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Í tölum Hagstofunnar sem upplýsingarnar eru unnar upp úr, er ferskum þorski skipt í fjóra flokka.  Nú í janúar var vægi hvers í magni þessi:

 

      • roðflett heil flök               48%
      • roðflett flök í bitum         38%
      • heil flök með roði               9%
      • óroðflett flök                       4%

 

Roðflett flök í bitum skilaði mestum verðmætum um 600 milljónum.

Þrjár þjóðir keyptu sinn hvern fjórðunginn af ferskum þorski héðan – Bandaríkin, Belgía og Frakkland.

 

Deila: