Nýr löndunarkrani í Norðurfirði

Deila:

Norðurfjarðarhöfn sem sveitarfélagið Árneshreppur rekur fékk nýjan krana nú á dögunum eða nánar á þriðjudaginn var kom hann norður. Fyrir helgina var verið að tengja hann og prufa. Kraninn lyftir um 1650 kílóum í lengstu stöðu sem eru átta metrar, en miklu meir í þegar hann er styttra út. Kraninn er fjarstýrður hægt að stjórna honum hvar sem er á bryggjunni og kranamaður getur því horft niður í bátinn sem verið er að landa úr, og er það talinn mikill kostur.

„Guðlaugur A Ágústsson hreppsnefndarmaður og vélstjóri sem sér um viðhald og alla umhirðu kranans og fleira segir að höfnin hafi fengið mjög góða þjónustu frá fyrirtækinu Barka í Kópavogi þar sem kraninn var keyptur frá. Gamli kraninn var orðin alveg búin og eldgamall, og ekki veitti af að skipta um krana nú þegar strandveiðitímabilið er að byrja eftir mánaðarmótin, og allt verður vitlaust í löndun, segir Gulli.“

Mynd og texti af litlihjalli.is

Deila: