Reynslusigling Breka gekk vel

Deila:

Breki VE stóðst öll próf í reynslusiglingu við Kínastrendur. Nú er togarinn kominn á ný í slipp til sandblásturs, galvaníseringar og málunar.

Ætla má að maímánuður líði þar til Breki flýtur á nýjan leik, fagurmálaður og fínn. Systurskipið, Páll Pálsson ÍS, er aftan við Breka í dráttarbrautinni og ætlunin er að sjósetja skipin samtímis að málun beggja lokinni. Þá taka við veiðarfæraprófanir í kínverskri landhelgi.

Að því búnu hillir loksins undir að Breki og Páll kveðji fæðingarstað sinn og sigli heim á leið.

Áður en Breki var tekinn upp til málunar var hann sem sagt á reynslusiglingu og stóð sig með prýði. Spennandi var að sjá hvernig skipin og „súperskrúfurnar“ þeirra reyndust.

Breki í Slippnum

Breki í Slippnum

Breki og Páll eru með 4,7 metra skrúfur í þvermál, þær langstærstu í íslenska flotanum.

Rakel Sævarsdóttir, verkefnastjóri hjá Skipasýn, segir að talið sé að um 80% af allri orkunotkun skips fari í að knýja skrúfu þess. Útreikningar Skipasýnar og mælingar sýni að stóru skrúfurnar á Breka og Páli séu á bilinu 30-40% sparneytnari en þriggja metra skrúfur.

„Togkrafturinn var mældur og reyndist yfir 50 tonn, sem er mjög gott. Ganghraðinn var 14 mílur í reynslusiglingunni,“ segir Guðni Ingvar Guðnason, umsjónarmaður fasteigna og skipa Vinnslustöðvarinnar. Hann er sjálfur á förum til borgarinnar Shidao í Kína eftir helgi til að heilsa þar upp á Breka og fylgjast með gangi mála í skipasmíðastöðinni.

„Skemmst er frá að segja að reynslusiglingin var nákvæmlega eins og Skipasýn, hönnuður skrúfu skipsins, og MAN, framleiðandi aðalvélar og skrúfu, gerðu ráð fyrir. Þar reyndist allt eftir bókinni og ekkert ófyrirséð eða óvænt kom upp.“

 

Deila: