Auglýsa eftir tilboðum í aflamark
Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki í kolmunna, rækju og makríl í skiptum fyrir þorsk eða steinbít.
Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski og steinbít. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 180,58 kr/kg og steinbítur 42,16 kr/kg.
Tilboðsmarkaðurinn opnar klukkan 8:00 mánudaginn 8. maí 2017. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.
Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/ ber að greiða 12.200 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.
Fisktegund | Þíg | Aflamark | |
Kolmunni | 0,09 | 4.543 | tonn |
Rækja við Snæfellsnes | 1,63 | 36.993 | kg |
Makríll | 0,21 | 8.929.000 | kg |
Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðasmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.
Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er ómheimil.