Tvenn verðlaun til Samherja

Deila:

Samherji hlýtur íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2017 í tveimur flokkum, framúrskarandi fiskvinnsla og framúrskarandi skipstjóri. – Verðlaunin voru veitt í 7 sinn í tengslum við Sjávarútvegssýninguna sem haldin var í Kópavogi.  Frá þessu er greint á heimasíðu Samherja og segir þar ennfremur:

Framúrskarandi fiskvinnsla.

Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja veitti viðtöku Íslensku sjávarútvegsverðlaununum í flokknum Framúrskarandi fiskvinnsla. Verðlaunin eru veitt Samherja fyrir landvinnslu félagsins á Akureyri og Dalvík.
Verðlaunin eru fyrst og fremst viðurkenning á því frábæra starfi sem okkar starfsfólk innir af hendi allt árið um kring.
Í umsögn dómnefndar kom meðal annars fram að Samherji hlýtur viðurkenninguna fyrir að hafa um árabil verið í forystu í þróun tækni og tækja í fiskvinnslu.“

Framúrskarandi skipstjóri.

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinsyni EA hlaut verðlaunin í flokkunum Framúrskarandi skipstjóri. Við afhendinguna kom fram að Guðmundur er einn af reyndustu og farsælustu skipstjórum íslenska flotans og skip undir hans stjórn hafa árum saman skilað mestu aflaverðmæti allra íslenskra fiskiskipa.
Guðmundur hefur stýrt Vilhelm Þorsteinssyni frá árinu 2001 og verið starfsmaður Samherja frá árinu 1986. Við hjá Samherja óskum Guðmundi innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenningu.

 

Deila: