Sjóstangveiðimót – umsóknir

Deila:

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um vilyrði fyrir aflaskráningu vegna opinberra sjóstangaveiðimóta sem áætlað er að halda á yfirstandandi fiskveiðiári, sbr. reglugerð nr. 916/2016 um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða m.s.br.

Skilyrði þess að afli sem veiðist á sjóstangaveiðimóti skráist ekki til aflaheimilda skips er að vilyrði Fiskistofu vegna aflaskráningar hafi verið aflað.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. og skulu umsóknir sendar Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði á sérstöku eyðublaði.

Með umsókn skal fylgja kostnaðaráætlun fyrir mótshaldið, samþykktir félagsins, upplýsingar um reglur  um félagsaðild og ársreikningar.

 

Deila: