Aðild að SA til umræðu á aðalfundi SFS

Deila:

Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) verður haldinn 4. maí 2018 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, frá kl. 9:30 til kl. 12:00 og er eingöngu fyrir aðalfundarfulltrúa. Tekin verða fyrir hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 12. grein samþykkta SFS, auk þess sem gerð verður grein fyrir úttekt á kostum og göllum aðildar SFS að SA, sbr. samþykkt aðalfundar 2017. Morgunkaffi og afhending fundargagna verður frá kl. 9:00 þann 4. maí á sama stað.

Dagskrá aðalfundar og nánari upplýsingar verður að finna á heimasíðu samtakanna, www.sfs.is.

 

Deila: