Steiktur þorskur með tómötum, ólífum og kapers
Þorskurinn er einstaklega góður matfiskur. Hvítt og fallegt holdið fer í flottar flögur þegar hann er eldaður og bragðið hlutlaust, fer í raun bara eftir því hvernig hann er verkaður og síðan matreiddur. Möguleikarnir eru óendanlegir. Fyrirtækið Norðanfiskur heldur úti glæsilegri uppskriftasíðu á slóðinni fiskurimatinn.is og þangað sóttum við þessa fínu uppskrift, sem er fyrir 4.
Innihald:
- 800 g þorskur
- 1 laukur, skrældur og grófsaxaður
- 3 hvítlauksgeirar, saxaðir í sneiðar
- 3 msk kapers
- 150 ml hvítvín (má nota vatn og safa úr ½ sítrónu)
- 700 g ókryddaðir tómatar í dós
- 80 g ólífur
- 1 knippi steinselja
- Ólífuolía
- Salt og pipar
Aðferð:
Steikið laukinn í potti í nokkrar mínútur, bætið þá hvítlauknum, kapersinu, hvítvíninu, tómötum og ólífunum saman við og eldið í u.þ.b. 20 mín.
Smakkið til með salti og pipar og bætið söxuðu steinseljunni saman við. Steikið þorskinn í 3 mín. á hvorri hlið og berið fram.