Hátíð hafsins helguð fullveldinu

Deila:

Hátíð hafsins verður haldin í 20. sinn, dagana 2. og 3. júní, á Grandagarðinum. Hátíðarsvæðið nær frá Hörpu, gegnum Gömlu höfnina, út á Grandagarð og að HB Granda. Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð standa sameiginlega að framkvæmd Hátíðar hafsins 2018 og eru meginstoðir hátíðarinnar.

Hátíðin samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum og er haldinn í þeim tilgangi að gefa fjölskyldufólki tilefni til að heimsækja hafnarsvæðið í Reykjavík og kynnast störfum sjómanna. Tónlist, skemmtun og veitingastaðir á svæðinu gleðja gesti og gangandi með ýmsu góðgæti. Gamla höfnin iðar einfaldlega af lífi þessa helgi.

Í ár er Sjómannadagurinn tileinkaður 100 ára Fullveldisafmæli Íslands, enda órjúfanlegur hluti af sögu lands og þjóðar.

Frekari upplýsingar um dagskrá Hátíðar hafsins 2018, má finna á heimasíðu hátíðarinnar, einnig hægt að skoða nánar hér.

 

Deila: