Veiða kolmunna í Rósagarðinum

Deila:

Hákon EA kom til Neskaupstaðar í gær og landaði 340 tonnum af kolmunna. Aflinn fékkst í Rósagarðinum og í gær voru fleiri skip komin þangað til veiða. Þarna voru Börkur NK, Beitir NK, Hoffell SU og Venus NS.

Beitir fékk þarna 340 tonn í einu holi og er á leið til Seyðisfjarðar með liðlega 2.000 tonn en megnið af aflanum fékkst í færeyskri lögsögu. Börkur fékk 270 tonn í Rósagarðinum í gær og er á leið til Neskaupstaðar með 1.740 tonn. Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri á Berki segir að mjög mikilvægt sé að kolmunni veiðist í íslenskum sjó.

„Það er mjög jákvætt að kolmunni veiðist í Rósagarðinum því við þurfum að veiða 25%  af kvótanum utan færeyskrar lögsögu. Þarna fékkst ágætur fiskur en við tókum bara eitt hol og drógum í 17 tíma. Þetta gefur vonir um að þarna megi fá þokkalegan afla og ég reikna með að stefnan verði tekin á Rósagarðinn strax eftir sjómannadag,“ segir Hálfdan í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Deila: