Akranes verði áfram rótgróinn útgerðarbær

Deila:

Akraneskaupstaður hefur ákveðið að fara út í fjölþættar aðgerðir til að sporna við afleiðingum þess að HB Grandi mun hætta bolfiskvinnslu á Akranesi í haust. Í þessum aðgerðum felast meðal annars umfangsmiklar hafnarframkvæmdir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bærinn hefur sent frá sér og er hún svohljóðandi:

Af hálfu Akraneskaupstaðar er von bundin við að starfsmönnum botnfiskvinnslunnar verði boðið starf við hæfi hjá HB Granda eða dótturfélögum þess og eru væntingar okkar að stærsti hluti þessa starfa verði á Akranesi. Sýnir þetta að fyrirtækinu er alvara með að efla starfsemina á Akranesi.

Útgerð og fiskvinnsla verða áfram meginstoð í atvinnustarfsemi Akraness og munum við tryggja að svo verði í framtíðinni með eftirtöldum aðgerðum:

  • Akraneskaupstaður mun tryggja, í samstarfi við aðra eigendur Faxaflóahafna, að ráðist verði í hafnarframkvæmdir í Akraneshöfn og þær kláraðar á næstu tveimur árum.
  • Breytingar á aðal- og deiliskipulagi verða kláraðar svo að af uppfyllingu í höfninni geti orðið. Búast má við að þetta verkefni muni taka allt að fjögur ár.
  • Akraneskaupstaður mun kynna Akranes sem valkost fyrir útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum og nú þegar sjáum við tækifæri tengd viðræðum við nokkra aðila. Við bindum miklar vonir við möguleika sem komið hafa í ljós síðustu vikur.
  • Akraneskaupstaður mun vinna í nánu samstarfi við yfirvöld við að tryggja að Akranes verði áfram rótgróinn útgerðarbær.
  • Akraneskaupstaður mun taka upp samstarf við íslenska sjávarklasann um öflugt samstarf fyrirtækja í sjávarútvegi til að nýta ný tækifæri til nýsköpunar og atvinnusóknar.

Jafnframt mun Akraneskaupstaður leggja mikla vinnu í að auka fjölbreytni atvinnulífsins með áherslu á einstök gæði Akraness fyrir fyrirtæki að hefja hér starfsemi. Tækifæri felast m.a. í:

  • Aðgengi að framúrskarandi dugmiklu fólki.
  • Nálægð við höfuðborgina þ.e. stærsta markaðssvæði landsins.
  • Hagkvæmu atvinnuhúsnæði og miklum möguleikum á lóðum fyrir atvinnustarfsemi.
  • Mikilli uppbyggingu hagkvæms íbúðahúsnæðis sem framundan er og hentar starfsfólki fyrirtækja sem starfa á Akranesi.
  • Góðu aðgengi að öflugum stoðfyrirtækjum í öllum helstu iðn- og þjónustugreinum.

 

Deila: