Gjaldtakan verði tekin föstum tökum

Deila:

„Þetta eru vondar fréttir en ég bind vonir við að forsvarsmenn HB Granda og Akranesbæjar eru að tala saman. Ég vona að eitthvað jákvætt komi út úr því enda eru 86 einstaklingar, mest konur, að missa vinnuna sem hafa byggt upp mikinn mannauð,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, í samtali á visir.is um þær fréttir að HB Grandi mun leggja niður botnfiskvinnslu sína á Akranesi og flytja starfsemina til Reykjavíkur.

Þá niðurstöðu tilkynnti Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, starfsfólki í gær en ástæðan er fyrirsjáanlegt tap fyrirtækisins af vinnslunni. Hjá HB Granda og dótt­ur­fé­lögum á Akra­nesi starfa 270 manns, en allt að 150 störf, að afleiddum störfum meðtöldum, munu tapast í byggðarlaginu.

„Ég vona að Akranesbær spýti í lófana, þeir hafa gert góða hluti á síðustu árum og fái Faxaflóahafnir til að fjárfesta í höfninni, og ekkert sleppa þeim við það, og þá koma fyrirtækin og nýta þennan mikla mannauð.“

Þorgerður segir að eðlileg hagræðing innan sjávarútvegsins sé mjög mikilvæg og hafi skipt máli fyrir fjárfestingu í greininni, „en hagræðing verður að fara saman við kröfuna um byggðafestu og atvinnuöryggi. Það er ekki gert með því að flytja störfin til Reykjavíkur – það er ekki samhengi þarna á milli,“ segir Þorgerður og bætir við að málið sé angi af öðru stærra – og hennar stærsta viðfangsefni sem sjávarútvegsráðherra.

„Það er sátt um gjaldtöku af auðlindinni. Þetta mál ýtir á að gjaldtakan verði tekin föstum tökum núna. Á meðan samfélagið telur að útgerðin hafi ekki borgað sanngjarna greiðslu fyrir sjávarauðlindina þá er þolinmæðin minni gagnvart svona stórtækum aðgerðum,“ segir Þorgerður.

 

Deila: