Ljósafell aflasækið

Deila:

Ljósafell SU 70 hefur verið aflasækið það sem af er júlímánuði.  Á lista sem birtur var á vegum Aflafrétta kemur fram að Ljósafellið er í öðru sæti yfir aflahæstu togarana með 562 tonn.  Túrarnir hafa verið stuttir, tveir til þrír dagar, og aflinn verið á bilinu 74 til 124 tonn.  Frá þessu er sagt á heimasíðu Loðnuvinnslunnar.

Ólafur Helgi Gunnarsson skipstjóri á Ljósafellinu svaraði því til, þegar hann var spurður út í hið góða gengi Ljósafells, að nægur fiskur væri á miðunum sem Ljósafellið hefði verið á. „Við höfum haldið okkur á Papagrunni, þar er sumargotssíld og fiskurinn sækir í æti tengt henni og við höfum nánast setið einir að borðinu“, sagði Ólafur.  Síðan bætti skipstjórinn því við að veðrið væri búið að vera með afbrigðum gott, „rjómablíða, það bærist ekki hár á hárlausu höfði“ sagði hann kátur.

Aðspurður að því hvort að áhöfnin kættist ekki yfir hinu góða gengi sagði hann svo vera en bætti því jafnan við að álagið væri mikið þegar svona mikið fiskast. „Fiskurinn fer ekki sjálfur ofan í lest, þetta eru mörg  handtök“ sagði Ólafur.  Hann lagði ennfremur áherslu á það að áhöfnin væri góð því svona árangur hæfist ekki öðruvísi.

 

Deila: