Leggja til bann á rækjuveiðum við Eldey

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að afli úthafsrækju fiskveiðiárið 2018/2019 verði ekki meiri en 5852 tonn, jafnframt leggur stofnunin til að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar á svæðinu við Eldey á almanaksárinu 2018.

Vísitala úthafsrækju hefur hækkað frá árinu 2015 er hún var í sögulegu lágmarki en er þó einungis um helmingur af vísitölu áranna 1990-2000. Niðurstöður stofnmælingar við Eldey benda til að stofninn sé undir varúðarmörkum og er vísitalan árið 2018 sú þriðja lægsta frá upphafi mælinga.

Afli af úthafsrækju hefur undanfarin á verið á bilinu 3.000 til 5.000 tonn. Rækjuafli við Eldey var enginn í fyrra, enda veiðar bannaðar. Árin þar á undan var aflinn í kringum 200 tonn.

 

Deila: