Byrjaði 10 ára í saltfiski
Maður vikunnar þennan daginn er yfirvélstjórinn á Hring SH frá Grundarfirði, Guðmundur Pálsson. Hringur er gerður út af G.Run og fiskar fyrir vinnsluna þar. Guðmundur byrjaði 10 ára að vinna í saltfiski með afa sínum og fór í fyrsta túrinn á sjó á togaranum Runólfi SH. Hann hefur mikinn áhuga á veiði og þykir villibráðin góð.
Nafn:
Guðmundur Pálsson
Hvaðan ertu?
Grundarfirði.
Fjölskylduhagir?
Giftur Hólmfríði Hildimundardóttir og eigum saman Pál Hilmar og Diljá.
Hvar starfar þú núna?
Yfirvélstjóri á Hring SH.
Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?
Byrjaði um tíu ára að vinna í saltfisk hjá Hring afa á Rifi en fór fyrsta túrinn minn á sjó 14 ára á Runólfi SH.
Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?
Á sjónum er það þegar fiskast vel og veðrið er gott.
En það erfiðasta?
Það er fjarveran frá fjölskyldunni.
Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í ístörfum þínum?
Það hefur margt skondið komið uppá á sjónum, en ekkert sem stendur sérstaklega uppúr.
Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?
Ég var svo heppinn að geta verið eitt sumar með Hringi Hjörleifssyni afa mínum á trillunni hans og er það mjög sterkt í minningunni.
Hver eru áhugamál þín?
Það er stangveiði, skotveiði og skíði.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Það er helst villibráðin sem ég veiði.