Kambur fær nýjan Cleopatra bát

Deila:

Útgerðarfélagið Kambur ehf í Hafnarfirði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 46B beitningavélarbát.
Framkvæmdastjóri Kambs er Hinrik Kristjánsson.

Nýi báturinn heitir Kristján HF 100. Báturinn er 14 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn.  Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni.
Skipstjórar á bátnum eru Atli Freyr Kjartansson og Sverrir Þór Jónsson.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 880hö (22L) tengd frístandandi ZF 665 V-gír.
Rafstöð er af gerðinni Scam/FPT/Linz 84kW (60kVA) frá Ásafli.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún ehf.
Báturinn er einnig útbúinn með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða.  Beitningavél, rekkakerfi og línuspil er frá Mustad í Noregi.
Búnaður á dekki er frá Stálorku.
Ísvél og forkælir er frá KAPP.
Löndunarkrani á er af gerðinni TMP frá Ásafli ehf.

Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir allt að 72 460 lítra kör í lest.  Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla fyrir 6 manns.  Stór borðsalur.  Salerni/sturta.  Þvottavél og þurrkari.  Svefnpláss er fyrir sex í lúkar í 4 aðskildum klefum.
Fullbúið eldhús er um borð með öllum nauðsynlegum búnaði.  S.s. eldavél, bakarofni, örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél.
Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.

 

Deila: