Borgarísjakinn við Hrólfssker að brotna niður

Deila:

Borgarísjakinn við Hrólfssker í mynni Eyjafjarðar hefur molnað í að minnsta kosti sex hluta og er ekki lengur landfastur. Ísinn getur því reynst hættulegur skipum og bátum á svæðinu samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Skipverji sem staddur var í grennd við borgarísjakann hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á öðrum tímanum í gær og tilkynnti um þær breytingar sem orðið höfðu á ísjakanum. Í kjölfarið sendi Landhelgisgæslan frá sér viðvörun til sjófarenda á svæðinu og eru þeir hvattir til að fara með gát.

Deila: