Upphafskvóti í loðnu ólíklegur

Deila:

Ekki mældist nægilegt magn af loðnu í nýafstöðnum rannsóknarleiðangri til þess að mælt verði með upphafkvóta á næstu loðnuvertíð. Endanlegar niðurstöður um niðurstöður leiðangursins munu líklega liggja fyrir í lok þessarar viku eða snemma í þeirri næstu og mun Hafrannsóknastofnun þá kynna þær með hefðbundnum hætti samkvæmt frétt á heimasíðu Hafró.

Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundsyni ásamt norska uppsjávarskipinu Eros, sem grænlenska Hafrannsóknastofnunin leigði til verkefnisins, dagana 5.- 28. september. Þetta var í fyrsta sinn sem Grænlendingar taka þátt í mælingunum að haustlagi en allt frá árinu 1984 hafa Íslendingar einir sinnt vöktun loðnustofnsins.

Loðnuleit haust 2018Rannsóknasvæðið náði yfir landgrunnið við Austur Grænland allt frá um 75°N og suðvestur með landgrunnskantinum allt suður að syðsta odda Grænlands, Hvarfi. Auk þess náði rannsóknasvæðið til Grænlandssunds, Íslandshafs, hafsvæðisins vestan við Jan Mayen auk Norðurmiða (sjá mynd). Veður hafði allnokkur áhrif á yfirferð skipanna, en að mestu leyti náðist að mæla við góðar aðstæður og hafís hamlaði ekki mælingum. Þannig náðist því að miklu leyti að fara yfir það svæði sem fyrirhugað var að skoða.

Samantekt á niðurstöðum leiðangursins er ekki lokið og áætluð stærð loðnustofnsins liggur því enn ekki fyrir en þó er á þessari stundu ljóst að magnið sem mældist sé undir því sem þarf til að mælt verði með upphafsaflamarki fyrir komandi vertíð.  Endanlegar niðurstöður um niðurstöður leiðangursins munu líklega liggja fyrir í lok þessarar viku eða snemma í þeirri næstu og mun Hafrannsóknastofnun þá kynna þær með hefðbundnum hætti.

 

 

Deila: