Þorskur við Noreg í boði

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki. Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar.

Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 158,25 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn er opinn frá þriðjudeginum 10. apríl 2018. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Fisktegund Þíg Aflamark  
Þorskur í norskri lögsögu 1,00  198.032 kg
Rækja í Djúpi 0,99    16.960 kg
Litli karfi 0,43   79.000 kg

 

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs. Tilboð telst ekki móttekið nema slík staðfesting berist.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er óheimil. 

„Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 3. mgr. 5. gr. reglugerðar 630/2017 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út,“ segir á heimasíðu Fiskistofu.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 16:00 þriðjudaginn 17. apríl 2018.

 

Deila: