Minnsta sótsporið

Deila:

Loftslagsmál voru eitt þeirra fjölmörgu málefna sem aðalfundur LS tók til umræðu.  Fulltrúum á fundinum þótti það jákvætt að stjórnvöld væru nú í æ ríkara mæli að koma að þessum málaflokki.

Smábátaeigendur eru sannfærðir um að eitt af tækifærum stjórnvalda í að draga úr mengun við fiskveiðar liggi í að auka hlut smábáta við nýtingu auðlindarinnar.

Eftirfarandi tillaga var samþykkt:

Aðalfundur LS telur að í ljósi þeirrar gríðarlegu áherslu sem stjórnvöld leggja á að vera fremst allra þjóða í loftslagsmálum skorar hann á þau að sýna þann vilja í verki með því að efla til muna smábátaútgerðina, þann hluta flotans sem skilur ekki aðeins eftir sig minnsta sótsporið við fiskveiðar, heldur og minnstu raskinu í umhverfi hafsins.

 

Deila: