Samvinna sýnd í máli og myndum

Deila:

Ráðstefna Hringborðs Norðurslóða eða Arctic Circle Assembly var haldin um liðna helgi. Samtök strandgæslustofnana norðurslóðaríkjanna (e. Arctic Coast Guard Forum) voru með sýningu á ráðstefnunni, þar sem sýnt var í máli og myndum hvernig norðurslóðaríkin átta vinna saman að því að stuðla að auknu öryggi þeirra sem fara um höf norðurslóða.

Finnar fara með formennsku í Samtökum strandgæslustofnana norðurslóðaríkjanna en Ísland tekur við þeim heiðri snemma næsta vor.

 

Deila: