Maður ársins á Suðurnesjum

Deila:

Guðmundur Ragnar Magnússon, stýrimaður og sigmaður hjá Landhelgisgæslunni, er maður ársins 2018 á Suðurnesjum að mati dómnefndar Víkurfrétta. Guðmundur fékk viðurkenninguna afhenta þegar hann fór í sitt fyrsta flug eftir að hafa rifbeinsbrotnað við björgunaraðgerðir flutningaskipsins Fjordvik í nóvember. Guðmundur Ragnar og áhöfn TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, bjargaði þá fimmtán við erfiðar aðstæður.

„Tilfinningin er mjög góð. Það er heiður að hafa lent inn á þessum lista,“ sagði Guðmundur Ragnar í samtali við  Víkurfréttir. Rætt er við hann í blaðinu og einnig í Suðurnesjamagasíni sem sýnt er á Hringbraut.

„Landhelgisgæslan er afar stolt af sínum manni og óskar honum innilega til hamingju með útnefninguna,“ segir í frétt frá Gæslunni.

 

Deila: