Mikil aukning í fiskeldinu

Deila:

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam um 1.728 milljónum króna í ágúst samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í gærmorgun. Þetta er mikil aukning frá sama mánuði í fyrra, eða sem nemur 123% og hefur útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei verið meira í ágústmánuði samkvæmt frétt frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Gengi krónunnar var að jafnaði 10% veikara í ágúst síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra miðað við gengisvísitölu krónunnar. Er því um að ræða tvöföldun í verðmætum í erlendri mynt. Í tonnum talið jókst útflutningur á eldisafurðum um 95%, en alls voru flutt út 1.764 tonn af eldisafurðum í ágúst samanborið við 906 tonn í sama mánuði í fyrra.

„Met“ löngu orðið ljóst
Á fyrstu 8 mánuðum ársins nemur útflutningsverðmæti eldisafurða um 15,5 milljörðum króna. Það er   79% aukning í krónum talið á milli ára, en á sama tímabili í fyrra var verðmæti eldisafurða komið upp í rúma 8,6 milljarða króna. Að teknu tilliti til gengisáhrifa nemur aukningin 60% og er það stóraukið eldi á laxi sem skýrir þessa aukningu eins og myndin hér fyrir neðan ber með sér. Á henni sést jafnframt að útflutningsverðmæti eldisafurða fyrstu átta mánuði ársins, er nú þegar orðið mun meira en það hefur áður verið á heilu ári. Með sama áframhaldi stefnir í að verðmæti útfluttra eldisafurða verði í kringum 24 milljarða króna í ár.

Deila: