Þorskveiðin að dragast saman á sa-miðum

Deila:

,,Við höfum verið hér á suðausturmiðum undanfarnar vikur og fengið góðan þorskafla. Það hefur dálítið af ýsu fiskast með. Nú er heldur að róast yfir þorskveiðinni en það á eftir að koma í ljós hvort um tímabundið ástand er að ræða,“ segir Magnús Kristjánsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK í samtali á heimasíðu Brims.

Á þessum tíma hafa ísfisktogarar Brims oft verið á þorskveiðum á Vestfjarðamiðum. Þar hefur hins vegar lítið fengist í haust á meðan töluvert hefur verið af stórum og góðum þorski fyrir austan.

,,Hér er mikill floti báta og togara og það hefur verið nóg fyrir alla fram að þessu. Hér hefur verið nokkuð gott tíðarfar en við hrepptum þó hið versta veður fyrir nokkrum dögum, haugabrælu og ekkert veiðiveður.“

Að sögn Magnúsar á Akurey löndunardag í Reykjavík á fimmtudag.

,,Hugmyndin er sú að enda túrinn á karfaveiðum á Fjöllunum á leiðinni heim. Það þýðir að við förum héðan áleiðis á Fjöllin. Þangað er 27 tíma stím og við náum því miðvikudeginum á karfaveiðum,“ segir Magnús Kristjánsson.

Deila: