VSV og Hafnareyri fyrirmyndarfyrirtæki 2019

Deila:

Vinnslustöðin er nr. 46 og Hafnareyri nr. 485 á lista alls 883 fyrirtækja sem Creditinfo telur framúrskarandi í ár. Þórdís Úlfarsdóttir, útibússtjóri Íslandsbanka í Eyjum, afhenti dýrindis kökur heiðrinum til staðfestingar í gær!

Fyrirtækjalistinn var birtur fyrir helgi og eins og nærri má geta standast mun færri en vildu kröfur sem gerðar eru til sæmdarheitisins framúrskarandi fyrirtæki 2019.

Einungis 2% allra íslenskra fyrirtækja teljast framúrskarandi.

Fyrirtækjunum er skipt í þrjá flokka:

  • Lítil (eignir 0-200 milljónir króna)
  • Meðalstór (eignir 200-1.000 milljónir króna)
  • Stór (eignir 1.000 milljónir eða meira.

Vinnslustöðin og Hafnareyri eru í flokki stóru fyrirtækjanna.

„Þetta snýst í raun um stöðugleika en ekki að ná góðum árangri í eitt og eitt ár. Stöðugur og góður árangur ár eftir ár telst framúrskarandi. Detti fyrirtæki út af listanum þarf það framúrskarandi rekstrarárangur þrjú næstu ár til að komast inn á listann á nýjan leik,“ segir í færslur á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

 

Deila: