Verðhækkanir halda aflaverðmætinu uppi
Aflaverðmæti fyrstu sölu nam 12,4 milljörðum króna í september sem er 13,6% meira en í september 2018. Verðmæti botnfiskafla nam rúmum 8,2 milljörðum og jókst um 26,5%. Af botnfisktegundum nam verðmæti þorskaflans 5,1 milljarði en aukning var á verðmæti allra helstu botnfisktegunda. Verðmæti uppsjávarafla var tæplega 3,6 milljarðar í september og dróst saman um 5,8% samanborið við september 2018.
Verðmæti afla sem seldur var í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam rúmum 7,6 milljörðum króna í september. Verðmæti sjófrysts afla var rúmlega 2,2 milljarðar og verðmæti afla sem seldur var á markað nam tæpum 1,8 milljörðum.
Á 12 mánaða tímabili, frá október 2018 til september 2019, nam aflaverðmæti úr sjó 144,2 milljörðum, sem er 15,4% aukning miðað við sama tímabil árið áður.
Athyglivert er að aflaverðmæti skuli hækka þetta mikið, þar sem fiskafli í september síðastliðnum var 109.000 tonn sem er 1% meira en í sama mánuði árið áður. Bendir það til þess að fiskverð hafi hækkað verulega frá síðasta hausti. Þannig má sjá að þorskafli í september varð 21.400 tonn sem er 4% aukning, en verðmæti þessa afla hækkar um 23,6%. Þá má benda á að verðmæti ufsa hækkað um 35,4%, þrátt fyrir að aflinn dragist saman um 16%.
Þá má benda á að afli að skelfiski, rækju og humri, var í september 1.952 tonn, sem 35% aukning, en verðmæti þessa afla lækkar engu að síður um 23,5%. Skýringa á því er helst að leita í óhagstærði aflasamsetningu. Mun minna veiddist af humri í haust vegna hruns í veiðistofninum. Verð á humri er mun hærra en á rækju.
Verðmæti afla 2018–2019 | ||||||
Milljónir króna | September | Október-september | ||||
2018 | 2019 | % | 2017-2018 | 2018-2019 | % | |
Verðmæti alls | 10.927,1 | 12.414,2 | 13,6 | 124.942,7 | 144.191,5 | 15,4 |
Botnfiskur | 6.518,0 | 8.244,6 | 26,5 | 88.631,8 | 110.309,6 | 24,5 |
Þorskur | 4.131,5 | 5.105,7 | 23,6 | 56.861,1 | 67.956,3 | 19,5 |
Ýsa | 756,0 | 1.033,7 | 36,7 | 9.367,0 | 14.657,9 | 56,5 |
Ufsi | 523,1 | 708,1 | 35,4 | 7.243,7 | 10.531,5 | 45,4 |
Karfi | 840,5 | 1.117,0 | 32,9 | 10.370,7 | 11.794,2 | 13,7 |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | – | 218,8 | 51,3 | -76,6 |
Annar botnfiskur | 266,9 | 280,1 | 4,9 | 4.570,5 | 5.318,5 | 16,4 |
Flatfiskafli | 561,7 | 590,1 | 5,1 | 9.734,3 | 9.505,7 | -2,3 |
Uppsjávarafli | 3.592,2 | 3.384,2 | -5,8 | 23.905,5 | 22.550,9 | -5,7 |
Síld | 462,1 | 2.196,3 | 375,3 | 4.101,6 | 6.693,0 | 63,2 |
Loðna | 0,0 | 0,0 | – | 5.891,7 | 0,0 | – |
Kolmunni | 34,2 | 25,8 | -24,5 | 6.285,9 | 7.268,5 | 15,6 |
Makríll | 3.095,8 | 1.162,0 | -62,5 | 7.626,3 | 8.589,4 | 12,6 |
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | – | 0,0 | 0,0 | – |
Skel- og krabbadýraafli | 255,2 | 195,3 | -23,5 | 2.671,1 | 1.825,1 | -31,7 |
Humar | 36,2 | 7,8 | -78,4 | 613,7 | 269,5 | -56,1 |
Rækja | 144,0 | 55,1 | -61,7 | 1.510,7 | 1.012,0 | -33,0 |
Annar skel- og krabbadýrafli | 75,0 | 132,4 | 76,6 | 546,7 | 543,6 | -0,6 |
Annar afli | 0,0 | 0,0 | – | 0,0 | 0,1 | – |
Hagtölur sem birtast í þessari fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á gögnum um verðmæti fyrstu sölu landaðs afla sem Fiskistofa safnar saman.