Rafræn aflaskráning í vefþjónustu Fiskistofu

Deila:

Fiskistofa vekur athygli á því að frá og með 1. mars nk. mun Fiskistofa ekki lengur útvega afladagbækur eða reka rafrænt aflaskráningarforrit. Í stað þess mun stofnunin bjóða uppá vefþjónustu sem tekur á móti aflaskráningum.

Frá og með 1. mars nk. verður ekki hægt að sækja núverandi smáforrit fyrir aflaskráningar Fiskistofu, og frá og með 1. apríl nk. verður því lokað.

Öllum er frjálst að tengjast vefþjónustu Fiskistofu sem tekur á móti aflaupplýsingum. Einnig má benda á að Trackwel hefur þróað smáforrit þar sem hægt er að færa aflaskráningu og senda í vefþjónustu Fiskistofu. Þeim aðilum sem vilja nýta sér þann möguleika er bent á að sækja það forrit eftir 1. mars nk. en fyrir 1. apríl.

Deila: