Umhverfisáhrifin að mestu óveruleg

Deila:

Benchmark Genetics Iceland hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um stækkun fiskeldis við Kalmanstjörn á Reykjanesi. Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg í móttöku Ráðhúss Reykjanesbæjar og hjá Skipulagsstofnun.

Benchmark Genetics Iceland hefur leyfi til framleiðslu á allt að 190 tonnum af laxi á ári í eldisstöðinni við Kalmanstjörn og hyggst auka framleiðsluna í 600 tonna hámarkslífmassa. Með framkvæmdinni getur fyrirtækið aukið hrognaframleiðslu í stöðinni. Áætlað er að auka þurfi vinnslu jarðsjávar á svæðinu um 700 L/s (ísalt vatn og jarðsjór) til að mæta framleiðsluaukningunni og grunnvatnsvinnsla vegna eldisins verði þá í heildina allt að 1.500 L/s meðalrennsli á ári. Áhrif aukinnar framleiðslu á laxi í eldinu við Kalmanstjörn og aukinnar vinnslu á grunnvatni þar eru metin óveruleg fyrir grunnvatn, jarðmyndanir og fornleifar. Áhrif á lífríki í fjörunni eru metin óveruleg til nokkuð neikvæð ef fráveitan verður áfram með núverandi fyrirkomulagi (kostur A) og áhrifin eru metin óveruleg ef fráveitan verður hreinsuð áður en eldisvatni er veitt í fjöruna (kostur B). Verði frárennsli hreinsað eru áhrif á fuglalíf metin óveruleg (kostur B) en óveruleg til nokkuð jákvæð verði fyrirkomulag fráveitunnar óbreytt frá því sem nú er (kostur A).

Einnig er hægt að skoða umhverfismatsskýrsluna hér. 

Viðaukar við skýrsluna eru hér.

Umsagnir skulu berast skriflega til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is eigi síðar en 13. apríl 2022.

Deila: