Bjarni í slipp í Færeyjum

Deila:

Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson er nú í slipp í færeyski skipasmíðastöðinni MEST. Helsta verkið er að yfirfara skrúfu skipsins, sem hefur verið að valda erfiðleikum. Auk þess verður almennu viðhaldi sinnt og skipið málað. Gert er ráð fyrir að verkið taki um tvær til þrjár vikur og fer skipið þá væntanlega á kolmunna.

Deila: