Árið 2021 það besta í sögu Arnarlax

Deila:

Rekstrartekjur Icelandic Salmon og dótturfélaga þess voru 90,8 milljónir evra á árinu 2021, sem jafngildir u.þ.b. 12,7 milljörðum króna. Þetta er veruleg aukning miðað við árið 2020 þegar tekjur samstæðunnar námu 61,8 milljónum evra. Þá nam rekstrarhagnaður (EBIT) fyrirtækisins 7,3 milljónum evra í fyrra, eða rúmum milljarði króna, sem er verulegur viðsnúningur frá tæplega 4,6 milljóna evra tapi ársins á undan. Jafngildir það rekstrarhagnaði upp á 0,63 evrur á hvert kíló fisks.

Icelandic Salmon er móðurfélag Arnarlax á Bíldudal.

Í fréttatilkynningu um afkomu félagsins segir að hagstæðir markaðir fyrir laxaafurðir hafi haft jákvæð áhrif á rekstur Icelandic Salmon, sem skilaði hluthöfum verulega bættri afkomu á nýliðnu ári og sem nýtt verður til frekari uppbyggingar.

Framleiðsla ársins 2021 var 11.563 tonn sem er 2,6% meira en árið áður. En hærra afurðaverð á helstu mörkuðum varð til þess að velta félagsins jókst um 50% milli ára.

„Árið 2021 var það besta í sögu fyrirtækisins á alla helstu mælikvarða og voru mörg stór skref stigin í átt að enn betri árangri í framtíðinni. Starfsfólki fjölgaði með ráðningum í ýmis ný hlutverk bæði stjórnenda og sérfræðinga. Þá voru mun minni afföll í framleiðslunni sem er mikið hrós fyrir starfsfólk okkar og til marks um þær úrbætur sem gerðar hafa verið í ræktunarferlinu á síðustu árum. Einnig kynntum við nýtt vörumerki, Arnarlax – Sustainable Iceland Salmon, sem var mikilvægur áfangi í að kynna áherslu okkar á sjálfbærni og græna framleiðslu“ segir Björn Hembre, forstjóri Icelandic Salmon.

Í sjálfbærniskýrslu fyrirtækisins, sem birtist með ársreikningnum, kemur fram að öll uppskera Icelandic Salmon sé nú ASC vottuð. Þá hafi fyrirtækið einnig fengið BRC matvælavottunina á síðasta ári sem sé mikilvægt skref fyrir sölu og markaðssetningu afurða fyrirtækisins í Bretlandi og víðar um heiminn. Þá hafi fyrirtækið hlotið jafnlaunavottun og hafið samstarf við Siðferðisgáttina, með tilheyrandi fræðslu til starfsfólks.
Frétt og mynd af bb.is

Deila: