Síldarvinnslan býður upp á samgöngusamning

Deila:

Fjórða árið í röð gefst starfsfólki Síldarvinnslunnar kostur á að gera svonefndan samgöngusamning við fyrirtækið. Slíkur samningur getur gilt frá 1. júní til 31. október eða hluta af því tímabili. Í samningnum felst að starfsmaður fer gangandi eða hjólandi í vinnuna að minnsta kosti fjóra daga í viku og fær þá styrk að upphæð 9.000 kr. og er samgöngustyrkurinn undanþeginn skatti.

Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar, segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að samgöngusamningurinn feli í sér ávinning bæði fyrir viðkomandi starfsmenn og fyrirtækið. Með samningnum eigi starfsfólkið kost á að bæta heilsuna með aukinni hreyfingu og fá umbun fyrir. Þá muni fyrirtækið njóta heilbrigðara starfsfólks. Með minnkandi bílaumferð verði rúmt á bílastæðum við vinnustaðina og eins beri að hafa í huga að samningurinn stuðli að bættu umhverfi.

Þeir starfsmenn, sem vilja gera samgöngusamning við fyrirtækið, skulu snúa sér til stjórnanda á viðkomandi vinnustað eða til starfsmannastjóra. Ljóst er að sjómönnum gefst ekki kostur á samgöngusamningi vegna eðlis starfa þeirra en þeir eru eindregið hvattir til að huga að heilsunni og stunda holla og góða hreyfingu.

Deila: