Breytt leyfi Arctic Sea Farm

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun að gefa út breytingu á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði. Breytingin felur í sér heimild til notkunar áæsætuvarna. Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni, allar breytingar má sjá í hornklofum í leyfinu.
Tillaga að breyttu leyfi var auglýst á tímabilinu 24. júní 2022 til og með 25. júlí 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar.
Tengd skjöl
Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði
Breytt starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. Dýrafirði