Í spennitreyju varðandi karfann

Deila:

,,Þetta byrjar sæmilega hjá okkur. Við náðum a.m.k. því sem vinnslan skammtaði okkur. Heildaraflinn er um 120 tonn, mest þorskur,” segir Friðleifur Einarsson (Leifur), skipstjóri á ísfisktogaranum Helgu Maríu AK, en togarinn var á leið til hafnar á Sauðárkróki er rætt var við Leif í gær á heimasíðu Brims.

Togarinn var að veiðum á hrauninu á Kolbeinseyjarhryggnum og segir Leifur að Helga María hafi verið þar ein að veiðum til að byrja með.

,,Það var fínt að sitja einn að þessu til að byrja með en skipunum fjölgaði svo smám saman og það var kominn töluverður fjöldi skipa á svæðið þegar við fórum. Þarna er nánast eingöngu þorskur ef frá eru taldar ein og ein grálúða sem skila sér í trollið. Ufsi er ekki í veiðinni en hann er brellinn og skýtur upp kollinum þegar minnst varir. Gullkarfa þarf ekki að óttast þarna. Við erum í spennitreyju hvað varðar karfann en verst er að það er alltaf verið að þrengja treyjuna. Hið sama gildir um ýsuna. Við reynum bara að forðast hana og veiða sem meðafla. Það gildir því sama um hana og karfann,” segir Leifur.

Að sögn skipstjórans verður þetta í annað sinn í röð sem landað er á Sauðárkróki.

,,Það er að mörgu leyti fínt að landa á Króknum. Siglingin frá miðunum er um 10 til 11 tímar. Það gerir okkur kleift að stytta túrana og landa oftar. Aflinn er svo fluttur suður til Reykjavíkur með flutningabílum og það tekur ekki nema tæpa fjóra tíma,” segir Friðleifur Einarsson.

 

Deila: