Krefjandi útkall þyrlusveitarinnar

Deila:

Landhelgisgæslan fór í krefjandi útikall á hafi út í slæmu veðri um helgina. Óskað var eftir aðstoð þyrlusveitar vegna veikinda í togara. Skipið var statt um 20 sjómílur út af Ísafjarðardjúpi. „Vegna veðurs þurfti áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, að beita töluverðri útsjónarsemi í fluginu. Tekið var á loft frá Reykjavíkurflugvelli og varð að fljúga með fram ströndu til móts við skipið en þangað var áhöfn þyrlunnar komin um klukkan 21:00. Þar voru aðstæður erfiðar sökum vinds og éljagangs en þrátt fyrir það gekk vel gekk að hífa skipverjann um borð í þyrluna. Áhöfnin fór að því búnu inn á Ísafjörð til eldsneytistöku og þaðan var maðurinn fluttur til Reykjavíkur þar sem hann komst undir læknishendur.”

Fram kemur í færslu á Facebook að útkall sem þetta krefjist mikils skipulags áhafnarinnar og varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, sem miðlar upplýsingum um um aðstæður og heldur utan um ýmis önnur mál svo flugið gangi sem best fyrir sig.

Myndin er úr safni.

Deila: