Leggja til aukna rækjuveiði fyrir vestan

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2022/2023 verði ekki meira en 242 tonn og að afli rækju í Ísafjarðardjúpi verði ekki meiri en 523 tonn.  Engin veiði var leyfð í Djúpinu á síðasta fiskveiðiári og í Arnarfirði um umtalsverða hækkun heimilda að ræða.

Hlekkur á ráðgjöf um Arnarfjörð.

Hlekkur á ráðgjöf um Ísafjarðardjúp.

Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hækkaði árið 2022 og var svipuð og á árunum 2013-2015. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2022 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði, má finna í tækniskjali.

Hlekkur á tækniskýrslu um Arnarfjörð.

Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi var svipuð og árin 2018-2020 og var yfir viðmiðunarmörkum. Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Ísafjarðardjúpi, veiðar og ráðgjöf má nálgast í tækniskjali.

Hlekkur á tækniskýrslu um Ísafjarðardjúp.

Hlekkur á ráðgjafarvef.

 

Deila: