Karl til liðs við Baader Ísland

Deila:

Karl Ásgeirsson hefur tekið við sem viðskiptastjóri Baader á Íslandsmarkaði og sem slíkur aðal tengiliður við íslenskar vinnslur. Karl tekur við góðu búi úr hendi Jochums Ulrikssonar sem látið hefur af störfum hjá Baader Ísland ehf, að því er kemur fram í tilkynningu.

Jochum hefur stýrt fyrirtækinu af lipurð í áraraðir og byggt upp gott samband við viðskiptavini um allt land. Fyrirtækið hefur þjónað íslenskum sjávarútvegi í meira en 60 ár og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í 12 ár í röð, þar að meðal í ár.

Upphaf starfseminnar má rekja til fimmta áratugarins þegar faðir og afi Jochums stofnuðu fyrirtæki til að þjónusta Baader vélar á Íslandi. Baader í Þýskalandi varð strax hluthafi og hefur Baader Ísland sinnt markaðinum æ síðar.

Við kaup Baader samstæðunnar á Skaganum 3X árið 2022 var tekin sú ákvörðun að sameina krafta Baader Íslands og Skagans 3X. Markmiðið er að koma á enn öflugri þjónustu við viðskiptavini og styrkja sameiginlega nýsköpun í sjávarútvegi.

Skilvirkar lausnir

Reynsla Karls af íslenskum sjávarútvegi gefur honum góða innsýn í þær áskoranir sem innlendir vinnsluaðilar standa frammi fyrir. Hann gjörþekkir vinnslulausnir Skagans 3X og Baader og hvernig þær geta skilað útvegsaðilum meiri vinnsluhraða, betri nýtingu og aukinni framlegð. „Ég legg áherslu á að kynnast viðskiptavinunum með heimsóknum og gefa mér tíma til að skilja þeirra áskoranir og finna þannig réttar lausnir fyrir hvern og einn,“ segir Karl sem unnið hefur hjá Skaganum 3X í yfir 15 ár. „Fyrirtækin mega eiga von á því að ég banki upp á og kynni mig til leiks. Ég vil þakka þeim sem nú þegar hafa tekið á móti mér og átt við mig samskipti í nýju starfi.“

 

 

Deila: