Lúðvík áfram stjórnarformaður Hafnasambands Íslands

Deila:

Hafnasamband Íslands fór fram í Félagsheimilinu Klifi í Snæfelsbæ dagana 27. og 28. október sl. Á fundinum var stjórn HÍ árin 2022-2024 kjörin. Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, fékk endurnýjað umboð til að leiða Hafnasambandið næstu tvö ár en auk hans sitja áfram í stjórninni þau Pétur Ólafsson, Hafnasamlagi Norðurlands og Alexandra Jóhannesdóttir frá Skagastrandarhöfnum. Þá sitja varamennirnir Björn Arnaldsson, frá Höfnum Snæfellsbæjar, og Hanna Björg Konráðsdóttir Reykjaneshöfn áfram.
Ný inn í stjórnina koma þau Gunnar Tryggvason frá Faxaflóahöfnum, Arnfríður Eide Hafþórsdóttir Fjarðabyggðahöfnum, Þórdís Sif Sigurðardóttur Vesturbyggðahöfn og Elliði Vignisson Þorlákshöfn. Þá var Dóra Björk Gunnarsdóttir frá Vestmannaeyjahöfn kjörin í varastjórn.

 

Deila: