Tæplega þúsund drónaflug hjá Fiskistofu

Deila:

Fiskistofa sendi dróna í 637 tilfellum til eftirlits með  fiskiskipum og bátum á síðasta ári.  Á þessu ári voru slíkar eftirlitsferðir orðnar 331 þann 26. október. 244 þessara eftirlitsfluga voru vegna báta með leyfi til grásleppuveiða.Þetta kemur fram í svari matvælaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um eftirlit Fiskistofu.

Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert er umfang eftirlits Fiskistofu, greint eftir fjölda skipta sem fjarstýrð loftför (drónar) eru send út til eftirlits? Svar óskast brotið niður á útgerðarflokka og veiðarfæri.

Ráðuneytið leitaði upplýsinga frá Fiskistofu vegna þessarar fyrirspurnar.
Árið 2021 var farið í 637 eftirlitsflug með fjarstýrðum loftförum:
*      177 eftirlitsflug með skipum með aflamark, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      128 með dragnót,
*      22 með þorskanet,
*      17 með botnvörpu,
*      5 með línu,
*      4 með loðnunót,
*      1 með flotvörpu.
*      154 eftirlitsflug með bátum með grásleppuleyfi.
*      102 eftirlitsflug með bátum með krókaaflmark, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      68 með línu,
*      33 með handfæri,
*      1 með gildrur.
*      71 eftirlitsflug með smábátum með aflamark, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      48 með þorskanet,
*      14 með línu,
*      5 með handfæri,
*      4 með kolanet.
*      68 eftirlitsflug með strandveiðibátum.
*      65 eftirlitsflug vegna lax, silungs og malartekju.

Á yfirstandandi ári fram að 26. október var farið í 331 eftirlitsflug með fjarstýrðum loftförum:
*      90 eftirlitsflug með bátum með grásleppuleyfi.
*      83 eftirlitsflug voru vegna lax, silungs og malartekju.
*      53 eftirlitsflug með strandveiðibátum.
*      46 eftirlitsflug með skipum með aflamark, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      25 með loðnunót,
*      16 með dragnót,
*      4 með flotvörpu,
*      1 með þorskanet.
*      27 eftirlitsflug með erlendum skipum, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      25 með loðnunót,
*      2 með flotvörpu.
*      22 eftirlitsflug voru með bátum með krókaaflmark, sem skiptust þannig eftir veiðarfærum:
*      18 með línu,
*      4 með handfæri.
*      10 eftirlitsflug með smábátum með aflamark, sem voru allir með þorskanet.

Deila: