Tímamót í rafvæðingu Sundahafnar

Deila:

Landtenging flutningaskipa Eimskips við Sundahöfn var formlega tekin í notkun í gær. Um er að ræða tímamótaverkefni á sviði loftlagsmála á Íslandi og þó víðar væri leitað þar sem unnið er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengandi efna frá flutningastarfsemi.

Verkefnið er samstarfsverkefni Eimskips, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, Faxaflóahafna og Veitna en skrifað var undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu og rekstur landtenginga fyrir skip í Sundahöfn í maí 2020. Norska fyrirtækið Blueday Technology AS hefur séð um hönnun og smíði á landtengingarbúnaði og verkfræðistofan Efla hafði umsjón með verkinu.

Með þessum áfanga er nú hægt að landtengja stærstu skip félagsins við rafmagn þegar þau eru í Sundahöfn í stað þess að keyra ljósavélar sem ganga fyrir olíu. Ávinningurinn er minnkun í losun gróðurhúsalofttegunda ásamt bættum loftgæðum og hljóðvist á svæðinu en landtengingin kemur til með að minnka olíunotkun um allt að 240 tonn á ári sem jafngildir útblæstri á um 750 tonnum af koltvísýringi (CO2).

Þessar breytingar styrkja þá vegferð Eimskips að minnka losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi sinni en nú þegar keyra allir kranar félagsins í Sundahöfn á rafmagni.

„Það er einstaklega jákvætt að sjá landtengingu í Sundahöfn verða að veruleika. Það er okkur mikilvægt að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að umhverfismálum enda er rekstur Eimskips margbreytilegur. Samstarf við alla hagaðila sem komu að verkinu var árangursríkt og ljóst að þegar kemur að orkuskiptum þurfa allir að leggjast á árarnar því að árangur næst ekki nema með samvinnu,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.

 

Deila: