Samkomulag um nýjan björgunarbát til Húsavíkur

Deila:

Laust fyrir áramót skrifuðu Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings og Birgir Mikaelsson, formaður  Björgunarsveitarinnar Garðars undir samning vegna stuðnings sveitarfélagsins við kaup á nýjum björgunarbát fyrir sveitina.

Markmiðið með kaupum Björgunarsveitarinnar Garðars á nýja björgunarbátnum er að  sinna þeim verkefnum sem sveitinni eru ætluð við Skjálfanda og í næsta nágrenni og segir í frétt um samkomulagið að mjög mikilvægt sé að á svæðinu sé öflugt skip sem tryggi öryggi sæfarenda og sem geti sinnt viðbragðsútköllum fljótt og vel. Umferð um Skjálfandaflóa hafi aukist gríðarlega undanfarin ár, m.a.  vegna hvalaskoðunar, strandveiða, farþegaskipa og aukinna farmflutninga vegna Bakka og Eimskips.

Við sama tilefni var tilkynnt um nafngift á nýja bátnum sem heita mun Villi Páls. Það nafn var valið eftir nafnasamkeppni á dögunum og þykir vel til fundið þar sem Villi var einn af stofnendum Björgunarsveitarinnar og formaður hennar í 22 ár.

Áttatíu milljóna fjárfesting
Landhelgisgæslan og Slysavarnafélagið Landsbjörg unnu greiningavinnu um öryggi sæfarenda á Skjálfanda og mátu úrbóta þörf hið fyrsta. Því er ráðist í kaup á nýjum björgunarbát sem er stórt verkefni upp á um 80 milljónir króna. Dómsmálaráðuneytið leggur til helming kaupverðs og því er hlutur Björgunarsveitarinnar um 40 milljónir króna. Björgunarsveitin leitaði til Norðurþings og tók byggðaráð erindið fyrir á fundi sínum þann 3. nóvember. Þar samþykkti ráðið að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við Björgunarsveitina vegna kaupanna og að heildarkostnaður Norðurþings verði allt að 20 m.kr, greiðslur skipt í fjórar jafnar greiðslur á árunum 2022- 2025. Sveitarstjórn staðfesti fyrirkomulagið með afgreiðslu fjárhagsáætlunar þann 1. desember síðastliðinn. Eftirstöðvar kaupverðs, um 20 milljónir verða fjármagnaðar af Björgunarsveitinni Garðari með frekari styrkjum frá fyrirtækjum og sjálfsaflafé.

Á meðfylgjandi mynd handsala Birgir Mikaelsson, formaður  Björgunarsveitarinnar Garðars og Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings samkomulag um stuðning sveitarfélagsins við verkefnið.

Deila: