Læra um stjórnun fiskveiða í víðu samhengi

Deila:

Í ár eru 9 stúdentar sem sækja Sjávarútvegsskóla GRÓ, sem áður heit Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna en sem fyrr er skólinn hýstur hjá Háskólanum á Akureyri.  Stúdentarnir eru frá El Salvador, Líberíu, Sierre Leone, Kenýa, Namibíu og Grænhöfðaeyjum og munu dvelja hér á landi fram í apríl.

„Þau eru að læra um hvernig á að stjórna fiskveiðum í mjög víðu samhengi, hvernig veiða má á sjálfbæran hátt, hvernig hafa má veiðarnar arðbærar og hvernig samfélagið getur haft sem mestan hag af. Dagskráin er mjög fjölbreytt og það eru 18 starfsmenn HA sem leiðbeina og kenna hópnum. Auk þess sem mikið samstarf er við Fiskistofu,“ segir Hreiðar Þór Valtýsson, deildarforseti Auðlindadeildar og umsjónarmaður Sjávarútvegsskólans, á vef Háskólans á Akureyri.

Háskólinn á Akureyri hefur verið virkur þátttakandi í Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna frá upphafi hans árið 1998. Nafnið Sjávarútvegsskóli GRÓ er til komið eftir að hann var fluttur undir GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir merkjum UNESCO, Mennta- vísinda- og menningarmálastofnun Sameinðu þjóðanna. Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu er sjálfstæð miðstöð um uppbyggingu færni og þekkingar í þróunarlöndunum og er er byggð á grunni Sjávarútvegsskóla sameinuðu þjóðanna (nú GRÓ), utanríkisráðuneytis og Hafrannsóknarstofnunar. GRÓ er mikilvægur þáttur í alþjóðasamstarfinu og eflir tengslanet HA um allan heim.

Deila: