Framkvæmdastjóri SFS: Samkeppni er góð

Deila:

„Fyrir upptöku aflamarkskerfisins var sjávarútvegur rekinn með miklu tapi, þrátt fyrir mun meiri afla.“ Þetta skrifar Heiðrún Lind Marteinsdóttir í pistli sem birtur er á heimasíðu SFS. Hún segir að offjárfesting hafi veirð að sliga greinina og að skipulag veiða hafi gert það að verkum að mikil verðmæti hafi tapast. Vissulega sé mikil fjárfesting í sjávarútvegi í dag en að hún sé skynsamlegri og til þess fallin að auka verðmæti. „Með betra skipulagi hefur verið hægt að tryggja nægt framboð af íslenskum fiski allt árið og ekki síður, halda uppi atvinnu allan ársins hring allt í kringum landið.“

Heiðrún Lind segir að í Noregi sé fiskvinnsla ekki heilsársstarf, þó Norðmenn veiði mun meira af þorski en við. Sex tíundu hlutar aflans komi á land á þremur mánuðum í upphafi árs. Þorskurinn þeirra sé svo fluttur til Póllands og Kína til vinnslu áður en hann sé fluttur á markaði. Hún segir líka að laun í fiskvinnslu séu margfalt hærri en í Póllandi og Kína. Eigi að síður hafi íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum tekist vel að halda sínu á erlendum mörkuðum. Stundum sé látið eins og það sé ekki sérlega flókið að reka sjávarútveg á Íslandi og að það sé gefið að sjávarútvegur skili raunverulegum tekjum til samfélagsins. Sagan sýni að svo sé ekki.

Að lokum segir Heiðrún Lind: „Samkeppni er góð. Hún heldur okkur á tánum og ýtir okkur lengra á þeirri leið að gera góða vöru enn betri. En það er ekki sjálfsagt að ná þessum árangri. Að baki liggur mikil vinna, fjármagn, hugkvæmni, þróun og endalaus leit að betri hugmyndum og lausnum. Aldrei má kvika frá því markmiði að halda íslenska þorsknum sem besta þorski í heimi.“

Pistilinn í heild má lesa hér.

Deila: