„Þetta er fullmikið fyrir okkur“

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum í gær, samtals um 120 tonnum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir skipstjórinn á Bergi að veður hafi gert mönnum erfitt fyrir. „Veðrið var leiðinlegt, þetta var einfaldlega vetrarveður sem stríddi okkur töluvert. Við byrjuðum túrinn í karfa á Sneiðinni og á milli Gjáa en veiðin þar var heldur róleg. Síðan var endað á Pétursey og Vík í þorski og ýsu. Túrinn tók tæplega þrjá sólarhringa. Við reiknum með að halda til veiða á ný strax að löndun lokinni eða í hádeginu í dag,“ er haft eftir Ragnari Waage Pálmasyni.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey tók í sama streng. „Veðrið var hundleiðinlegt í veiðiferðinni. Á laugardag var austan 20 – 25 metrar og síðan fór hann í rúmlega 31 metra um kvöldið. „”. Annars var túrinn kvótavænn, en í honum fékkst blandaður afli. Mest var veitt af löngu. Að þessu sinni var verið að á Selvogsbanka, Háadýpi og Vík. Við komum inn í gærkvöldi en það var landað í morgun og haldið til veiða strax að löndun lokinni klukkan átta í morgun.“

Deila: