Gott fiskerí en veðrið þreytandi

Deila:

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum sl. miðvikudag eftir stuttan túr, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var að sögn fyrst og fremst þorskur og ýsa sem fékkst á Víkinni og á Ingólfshöfða. Skipin héldu strax til veiða á ný og lönduðu fullfermi á sunnudag og var aflinn blandaður.

Haft er eftir skipstjórunum, Jóni Valgeirssyni á Bergi og Birgi Þór Sverrissyni á Vestmannaey, að það hafi verið rótarfiskirí að undanförnu en veður hafi hins vegar verið þreytandi. Ber þeim saman um að maímánuður hafi verið slæmur veðurfarslega og gjarnan hafi verið haugasjór og leiðindi.

Fram kemur að skipstjórar og stýrimenn þessara hafi verið á fjögurra daga námskeiði í meðferð stafrænna sjókorta. „Námskeiðið er haldið í Eyjum og auk manna af Eyjaskipunum eru tveir af Berki NK á námskeiðinu. Stafrænu sjókortin eru fyrir hendi í skipunum en skipstjórnarmenn þurfa að hafa sótt umrætt námskeið til að mega nota þau. Ber mönnum saman um að námskeiðið sé bæði gott og gagnlegt,” segir á vefnum.

Gert var ráð fyrir að Bergur og Vestmannaey héldu til ný á veiða í dag.

Deila: