Cleopatra á leið til Noregs

Deila:

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nýverið nýtt skip, Cleopatra 36 bát til Noregs. Útgerðarmaðurinn Piera Gaup keypti bátinn en hann gerir út frá Tanafirði í Finnmörku. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Báturinn hefur fengið nafnið Barent Gadus. Báturinn er 10,99 metrar að lengd, 11 brúttótonn og leysir af hólmi eldri Cleopatra 36 bát sem útgerðin hefur rekið frá 2014. Báturinn er útbúinn til línu- og netaveiða.

Aðal­vél báts­ins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd ZF325IV gír.

Deila: