Fullfermi af Karfa

Deila:

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði nánast fullfermi í Eyjum sl. sunnudag að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var nánast eingöngu karfi. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að fyrst hafi þeir veitt djúpkarfa á Grindavíkurdýpinu en svo farið í Skerjadýpið þar sem fékkst grunnkarfi.

„Þá lá leiðin á Stuttagrunn við Eldeyna og þar fékkst gullkarfi. Aflinn var nánast eingöngu karfi, fáeinir ufsatittir í þessu. Við fórum út strax eftir löndun og þá var haldið beint austur á Ingólfshöfða. Þar var góð þorskveiði í byrjun en svo datt botninn úr veiðinni. Núna, þegar ég er að tala við þig, erum við á fullri ferð á leiðinni á Papagrunn fyrir austan. Þar hefur verið góð ýsuveiði að undanförnu og fengist þorskur og smávegis ufsi með. Það virðast hins vegar engin skip vera á Papagrunni núna. Kannski eru þau að flýja ýsuna sem þar heldur sig,“ segir Jón.

Deila: