Gullkarfi, djúpkarfi og ýsa

Deila:

Blængur NK kom til Neskaupstaðar á mánudag eftir 26 daga veiðiferð. Skipið var með fullfermi, 760 tonn upp úr sjó, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Uppistaða aflans var að sögn gullkarfi, djúpkarfi og ýsa en einnig nokkuð af gullaxi.

Haft er eftir Bjarna Ólafi Hjálmarssyni skipstjóra að veitt hafi verið í Rósagarðinum, fyrir sunnan land og vestan og vestur á Hala. Aflinn hafi verið jafn og góður allan tímann.

„Það var nánast samfelld vinnsla og þá er mikilvægt að hafa hörkuáhöfn eins og við höfum svo sannarlega. Skipið er troðfullt og það getur ekki verið mikið betra. Almennt má segja að þessi veiðiferð hafi gengið afar vel og það eina sem unnt er að kvarta yfir er ufsaleysið og það er ekki í fyrsta sinn sem kvartað er yfir því,“ er haft eftir honum.

Ráðgert er að Blængur haldi á ný til veiða á fimmtudagskvöld og komi síðan inn í lok mánaðarins eða fyrir kvótaáramótin.

Deila: