Samningafundur í dag

Deila:

Samninganefndir sjómanna og útvegsmanna munu leita lausna í kjaradeilu þeirra í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 13 í dag. Það verður fyrsti fundur deilenda frá því fyrir jól en þrjár vikur eru frá því að verkfall sjómanna hófst samkvæmt frétt á visir.is

Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar og varaformaður Sjómannasambandsins, segist bjartsýnn um árangur á þessum fundi.

„Auðvitað bindum við vonir við að við að minnsta kosti náum saman um það að setja eitthvað af stað og að menn ætli sér að ljúka kjarasamningi, en ekki að sitja í verkfalli. Það er óásættanlegt fyrir alla aðila,“ segir Konráð.

Hann segir að lagt sé upp með að ná samkomulagi um ákveðin atriði á fundinum í dag: „Það sem við lögðum fram var nýsmíðaálagið, olíuverðstenginguna og sjómannaafsláttinn, vinnufatnað og fæðiskostnað.“

Tekjur sjómanna hafa lækkað samfara hækkun krónunnar. Konráð segir það af og frá að kenna hækkun hennar um að samningar við útvegsmenn hafi ítrekað verið felldir.

„Þetta er sennilega bara til að skapa einhverja úlfúð eða eitthvað slíkt því þetta kemur kjarasamningnum ekkert við. Það er ósköp einfalt mál. Við ráðum ekki genginu. Sjómenn hafa tekið þessar dýfur með útgerðinni og risið líka þegar það kemur. Þetta á bara ekkert að blandast inn í kjarasamningsumræðuna og það er algjörlega óásættanlegt að útgerðin sé með þennan málflutning,“ segir Konráð.
Ljósmynd: Vikudagur

Deila: