Útgerð ranglega sökuð um verkfallsbrot

Deila:

Sagt var frá því í fréttum flestra fjölmiðla á þriðjudag að Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis teldi Nesfisk ehf. hafa brotið gegn verkfallsrétti þegar tvö skipa fyrirtækisins héldu til veiða í gær, hinn 3. janúar 2017. Í viðtali staðhæfði formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis að um skýlaust brot hafi verið að ræða og að málið væri litið alvarlegum augum. Þá boðaði formaðurinn að fyrirtækinu yrði gerð sekt vegna málsins.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafna því að brotið hafi verið gegn verkfallsrétti í þessu tilviki. Enginn í áhöfn skipanna tveggja er í Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis og enginn í áhöfn gekk í störf einstaklinga sem eru í verkfalli. Þá breytir engu í þessu samhengi að hlutaðeigandi skip séu gerð út á félagssvæði Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis. Boðvald stéttarfélagsins er bundið við eigin félagsmenn og nær því ekki til starfsmanna sem ekki eru félagsmenn í hlutaðeigandi stéttarfélagi. Þeim einstaklingum verður því ekki gert að leggja niður störf.

Það er alvarleg íhlutun að beita sektum eða stöðva skip sem halda til veiða með lögmætum hætti. Sé um ólögmæta íhlutun stéttarfélags að ræða, kann það að leiða til skaðabótaskyldu þess.

 

 

Deila: