Boða drónaeftirlit í ágúst

Deila:

Fiskistofa tilkynnir á vef sínum að eftirlitsmenn stofnunarinnar muni fljúga drónum til eftirlits í ágúst. Ekki kemur fram hvar drónunum verður flogið eða nánari tímasetningar. Fram kemur að allar upptökur séu skoðaðar og fiskur sem fer fyrir borð tegundargreindur. Stofnunin biðlar til sjómanna að kynna sér vel reglur um lög og stjórn fiskveiða.

Nokkur atriði til að huga að:

  • Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.

  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

  • Sleppa á grásleppu sem fæst í  þorskfiskanet.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

Deila: